19.02.2010 10:45:42 / sigfusfossdal-powerburn
Þá er það seinasta æfingin. Það var svolítill galsi í mönnum, enda vissu menn í hópnum að þetta væri seinasta æfingin fyrir mælingar. Við tókum allir vel á því og ég var hel pumpaður í öxlunum eins og oft áður á handadögum.
Svitnaði hrikalega vel fann ekkert fyrir öxlinni sem er búin að vera a bögga mig smá seinustu vikur. Hún er mun skárri í powerburn en á daginn þegar ég er að lyfta.
»
19.02.2010 10:38:31 / sigfusfossdal-powerburn
Í dag var seinasti fótadagurinn, og var tekið vel á því. Mig er farið að hlakka solið til að meiga sofa lengur á morgnana suma daga, en hlakkar alveg ekkert til að hætta í þessu. Ég myndi halda áfram ef það væri ekki að styttast í mót hjá mér, og ég er búin að ákveða að taka annað svona námskeið í sumar eftir EM.
»
07.02.2010 19:23:59 / sigfusfossdal-powerburn
Vá það var eitthvað óvenju erfitt að vakna í morgun. Var líka eitthvað illa fyrir kallaður í maganum, en náði að ýta sjálfum mér vel áfram og er mjög sáttur með æfinguna.
Nú er seinasta vikan hafinn og þetta hefur verið mjög gaman. Mér eiginlega hlakkar ekkert til að hætta. Finn á mér að fyrir mig er þetta að hjálpa mér helling í vöðva uppbyggingur og að jafna mig í vöðvunum eftir þungar kraftlyftingaæfingar. Ég hef verið að borða mikið þar sem ég er ekki að reyna að léttast heldur bara skifta fitu í vöðva, og er meira en til í að massast vel með þessu. Ég hef hinsvegarnáð að borða hollar en ég geri oftast. Mataræðið er stundum veikihlekkurinn hjá mér en hefur ekki mikið verið það í þetta skiftið.
»
07.02.2010 19:20:02 / sigfusfossdal-powerburn
Í dag var axlardagur. Svitnuðum vel og æfingin var góð. Það eru margir farnir að sjá augljósan árangur og aðrir farnir að taka eftir smá vægilegum atriðum sem gaman verður að skoða betur í næstu mælingum.
Ég er mjög ánægður með að þrátt fyrir að vera búin að vera slæmur í öxlinni seinustu vikur get ég alveg gert powerburnið, það er ekkert að bögga það sem sýnir bara hve gott prógrammið er að það geta allir látið það vinna fyrir sig.
»
02.02.2010 15:41:57 / sigfusfossdal-powerburn
Enn einn fótadagurinn. Þeir eru erfiðastar en líka með þeim skemmtilegri. Æfing dagsins tók vel á mjóbakið, og pumpaðist ég vel. Þetta er allt að virka. Var svo hrikalega hress á æfingunni um kvöldið, er kominn nálægt mínu besta í búkka bekk til dæmis, þannig að þetta gengur vel. Fynnst ég vera að þykkna vel af kjöti með þessu en það kemur í ljós betur í eftir mælingunum.
Á miðvikudaginn er svo önnur handa powerburn æfing, er eiginlega bara farið að hlakka til.
»
02.02.2010 15:37:32 / sigfusfossdal-powerburn
Þetta var rosaglegur dagur. Alveg orðin helpumpaður í maganum og voru hnébeygjurnar á kraftlyftingaæfingu kvöldsins voru mjög erfiðar út af því þó ég væri vel ferskur. Aflið er að aukas, og grunnstyrkurinn að verða meiri. Flensan er á undanhaldi, en enþá einhver. Sé sko alls ekki eftir að hafa tekið þetta námskeið. Það er að hjálpa mér helling finnst mér í brennslu, afli og recovery.
Ég verð orðin hrikalegur á EM, og powerburnið á sko þátt í því.
»
02.02.2010 15:32:17 / sigfusfossdal-powerburn
Flensan er en að bögga mig, en get huggað mig við að það var bara powerburn í morgun en ekki æfing í kvöld. Æfingin gekk vel, er búin að vera með verk í öxlinni, en mér finnst hún alltaf aðeins betri eftir handa powerburn æfingarnar sem eru á miðvikudögum. Powerburnið er að dæla miklu blóði í alla vöðva og það er að virka vel sem recovery fyrir mig.
»
02.02.2010 15:29:08 / sigfusfossdal-powerburn
Er búin að ná mér í smá flensu, hún er aðeins að bögga mig en æfingin gekk samt vel. Var svo aðeins orku minni en undan farið á lyftingaræfingunni um kvöldið, en gekk samt vel. Finnst ég vera að styrkjast mikið í búknum.
Það er mjög skemmtilegur andi í hópnum og skemmtum við okkur allir vel.
»
25.01.2010 18:44:57 / sigfusfossdal-powerburn
Jæja einn tími búinn enn, og er en að fíla þetta.
Í dag var fókus á core æfingar, og fékk ég fína strengi í magan, og fann hvað þessar æfingar náðu saman að þreytta búkvöðvana vel.
En sem komið er hefur þetta gengið mjög vel, og það gengur hrikalega vel að styrkjast með þessu.
Í fyrramálið er svo næsta fótaæfing. Seinasta var hrikaleg, vona að þessi verði jafn góð.
»
20.01.2010 08:21:32 / sigfusfossdal-powerburn
Þá er þriðja æfingin búin og í dag voru það axlir. Ég hef alltaf átt mjög erfitt með að taka margar endurtekningar í öxlum því þær eru fljótar að pumpast hjá mér og það var sko alveg að gerast í dag. Mig sveið hrikalega í brjóstin og axlirnar enda í miklu powerformi(sterkur en ekki með vöðvaúthald). Náði að svitna vel á æfinguni, og hún gekk alveg ótrúlega fljótt fyrir sig. Manni fannst þetta í raun ekkert mál, en náði samt hrikalegri virkni út úr þessu. Þetta er einhvern vegin erfitt en samt auðvelt að hvetja sjálfan sig áfram í þessu.
Nú erum við þá búnir með eina viku af fjórum, og heyrist mér á hópnum að allir séu mjög ánægðir með hvernig þetta hefur verið að ganga. Mér hefur fundist þetta hjálpa mér að jafna mig eftir kraftlyftingaæfingarnar sem við tökum á kvöldin, og ég er skárri í hnéinu eftir að ég byrjaði í þessu, en ég var búin að vera með verk í hægra hnéinu síðan í lok nóvember. Þessar endurtekningar og þessi hiti virðist vera að hafa góð áhrif á vöðvajafnvægi og litlu vöðvana.
Í kvöld er svo engin poweræfing því það er miðvikudagur, og á morgun eru bara leiðréttingar æfingar, core æfingar, kviðæfingar og teygjur hjá okkur í powernum þannig að maður mætir ferksur í powerburn á föstudaginn......... Mig er bara eiginlega strax farið að hlakka til.
»
18.01.2010 13:13:25 / sigfusfossdal-powerburn
Í morgun var svo æfing 2. Hún var fóta og neðriskjóðu æfing. Þegar ég sá æfingarnar sem við áttum að gera hélt ég að þetta yrði of mikið en þetta gekk bara mjög vel. Fékk aðeins of mikið pump í upptökin á öðrum rassvöðvanum sem olli mér smá hættulausum þjáningum en teygði létt á því á milli hringja og kláraði allt, þarna var kraftlyftingaformið að segja til sín. Við brostum allir hinu breiðasta eftir æfinguna, vel sveittir og nokkuð þreyttir en samt er þetta ekki svona búin á því þreyta. Um leið og maður fær að borða þá er maður sko tilbúin í daginn. Nú er svo þungur bekkur í kvöld og verður gaman að sjá hvernig orkan hjá mér verður þá, hvort ég verði jafn orkumikill og á föstudag, eða hvort það hafi verið tilviljun. Miðað við hvernig mér líður núna, þá er sko engin tilviljun í gangi.
Ég er alveg á því að allir geti notað sér þessa tíma til að ná árangri. Æfingarnar eru þess eðlis að fyrir þá sem eru með einhverja veikleika eða verki er hægt að breyta hreifnugunum lítillega, stytta þær, eða sleppa því að æfa með lóð, notast bara við útlimina.
Bókstaflega magnað, mig hlakkar til að geta haldið áfram í powerburninu á miðvikudaginn. Þetta er alveg ótrúlega snilld.
»
18.01.2010 13:07:51 / sigfusfossdal-powerburn
Fyrsta æfingin var á föstudaginn seinasta, og var þar um að ræða kjarnaæfingar og stöðugleika æfingar. Við vorum þarna 6 saman, og náði hópurinn strax vel saman, enda þekktust flestir amsk eitthvað. Ég fór hægt á stað í fyrsta hringinn en svitnaði vel, og strax í öðrum hring var farið að dropa af mér á gólfið. Við kláruðum 5 góða hringi og vorum allir gegn blautir. Tilfinningin var frábær, endorfínið í botni eftir æfinguna.
Það sem ég var mest að fíla við þetta var að ég fann alveg í rúma 6 tíma eftir þetta að líkaminn var í fullugangi, og fann svona innri hita, eitthvað sem ég finn ekki þegar ég tek jafn langa brennslu á hlaupabrettum. Það var svona eins og maður fyndi að vöðvarnir hefðu náð miklu dýpri hita í sig heldur en við að labba, hjóla eða vera á cross trainer. Svo um kvöldið klukkan 7, eða 12 tímum eftir æfinguna, óttaðist ég pínu að af því ég hefði tekið svona góða morgun æfingu með lóðum að ég yrði ekki jafn orku mikill á kraftlyftingaæfingunni um kvöldið en raunin var sko önnur. Það var nóg afl, fínn sprengi kraftur og leið bara heilt yfir miklu betur en oft áður.
Ég er alveg að fíla þetta og held þetta muni hjálpa mér að ná góðum árangri á EM í sumar, og það með lægri fituprósentu en ég hefði verið með án námskeiðisins.
»
18.01.2010 13:01:54 / sigfusfossdal-powerburn
Já ég hef ákveðið að taka mánuð powerburn sem eru fitubrennslu og uppbyggingartímar sem Gemma Magnússon bjó til, og Ingibjörg Óladóttir er að kenna hér í Viking Gym. Án þess að fara mikið út í það byggist þetta upp á stöðvaþjálfun með úthugsuðum æfingum, skiftingu á æfingum, hvíldum á milli og lengd á átaki. Gemma mælti með því að ég myndi prófa þetta þar sem ég er núna á undirbúningstímabili fyrir mót en ekki uppkeyrslu. Þetta myndi hjálpa mér mikið að byggja upp þol, brenna fitu og íta undir recover milli kraftlyftingæfinganna minna.
Við fórum nokkrir strákarnir saman í þetta til að sýna svolítið út á við að þessir tímar eru ekki bara fyrir konur. Þeir hennta í raun öllum rosalega vel, bæði ungum og gömlum, konum og körlum, nýjum sem og þeim sem hafa æft lengi. Þeir stuðla að fitubrennslu og uppbyggingu vöðvanna. Það eru allt frá húsmæðrum, til fitnessstelpna, til lögfræðinga til kraftlyftingamanna sem hafa verið að æfa þetta og verið að ná góðum árangri.
Ég hef mikla trú á þessu, og í raun svo mikla að við strákarnir ætlum að halda úti bloggum um þennan mánuð til að leifa fólki að fylgjast með okkur í þessu.
Ég vona að einhverjir hafi gaman af því að fylgjast með, og fái áhuga á að prufa.
»
18.01.2010 12:47:40 / BlogCentral
Eigandi þessa nýja bloggs hefur ekki gefið út fyrstu bloggfærsluna sína. Viðkomandi er án efa í óða önn að velja sér flott útlit, aukahluti, hlaða upp myndum og semja meistaraverk til að færa á spjöld sögunnar. Við bjóðum viðkomandi að sjálfsögðu velkominn á BlogCentral!
»